Matreiðslumeistarinn Haddi kokkur deilir hér með lesendum uppskrift af himneskum rétt – Grillaður Ananas með Grískri Jógúrt Myntusósu. Hann er að sjálfsögðu með vínpörunina einnig á hreinu.
Hráefni
1stk Sætur Ananas
200gr Grísk Jógúrt
Rifinn börkur af einu Lime
5stk Fersk myntublöð. Söxuð
2msk Hunang
Safi af ½ Lime
50gr Kókos (Ristaður á pönnu)
Aðferð
Ananas
Skrælið Ananasinn
Skerið í 4 hluta. Takið Kjarnann úr
Skerið í jafnar sneiðar
Veltið uppúr Ólífu olíu
Jógúrt Myntu sósa
Blandið saman Jógúrt, Lime Börk, Lime Safa, Myntu & hunangi
Setjið til hliðar
Grillið ananas í 3-4 mín á hvorri hlið. Setjið á disk ásamt sósu. Stráið Ristuðum kókos
yfir. Skreytið með myntublaði
Með þessum rétt er tilvalið að fá sér Bava Moscato d’Asti. Vín sem er létt og ferkst, þar sem að sætan í víninu parast vel með við Ananasinn.