Pere Magloire er Calvados framleiðandi með ríka sögu. Fyrirtækið var stofnað árið 1821, og upp úr aldamótunum 1900 var Pere Magloire mest selda Calvados í Frakklandi. V.S.O.P frá þeim ber með sér ríkan ávaxtakeim og er látið geymast á eikartunnu í 4 ár hið minnsta.