• GILDI SKILMÁLA

Skilmálar þessir eiga við um sölu á vörum og þjónustu frá Kalla K – Karl K. Karlsson á heimasíðu þess www.kallik.is til viðskiptavina. Viðskiptavinir undirgangast þessa skilmála við notkun og kaup á kallik.is.

  • ALDURSTAKMARK

Áskilið er að viðskiptavinir hafi náð 20 ára aldri til þess að geta verslað áfengar vörur á kallik.is.

Allir viðskiptavinir þurfa að skrá sig inn á kallik.is með netfangi og lykilorði. Í upphafi og síðan við hver viðskipti skulu viðskiptavinir auðkenna aldur sinn með rafrænum skilríkjum.

Viðskiptavinir bera ábyrgð á að aðgangsauðkenni komist ekki í hendur annarra aðila sem ekki hafa náð 20 ára aldri.

  • AFHENDING

Vörur kallik.is verða afgreiddar úr vöruhúsi þess sama daga og pöntun er gerð eða næsta virka dag. Nánari upplýsingar um afhendingar má finna á heimasíðu kallak.is hér.

Sendingarkostnaður bætist við verð hverrar pöntunar í lok pöntunarferlis og við staðfestingu pöntunar, áður en greiðsla er innt af hendi.

Ef vara reynist ekki til þegar hún er pöntuð og greidd þá mun viðskiptavini verða boðin önnur sambærileg vera eða endurgreiðsla, kjósi hann svo.

  • SKILARÉTTUR

Viðskiptavinir hafa 14 daga frest til að falla frá kaupum þegar verslað er í gegnum kallak.is Skal tilkynning um að falla frá kaupum hafa borist kallak.is innan fjórtán daga frá því að viðskiptavinur tók vöru í sína vörslu eða vara er send frá kallak.is, en fellur niður að þeim tíma liðnum sbr. 16. og 17. gr. laga nr. 16/2016 um neytendasamninga. Til að heimilt sé að nýta skilarétt þarf vara að vera í upprunalegum pakkningum, í óaðfinnanlegu ástandi og sannanlega keypt hjá kallak.is

Ákvæði VI. kafla laga nr. 16/2016 um neytendasamninga gilda að öðru leyti um skilarétt viðskiptavina, þ. á m. um endursendingu og endurgreiðslu.

Mögulegt er að semja sérstaklega um skil vegna kaupa á miklu magni vegna sérstakra viðburða, svosem veislna o.þ.h. Um slíkt skal ávallt samið áður en kaup eru gerð og er bent á að hafa samband á netfangið  [email protected] eða í síma 540-9000.

  • VERÐ OG VERÐBREYTINGAR

Öll uppgefin verð eru í íslenskum krónum með virðisaukaskatti, 11% eða 24%.

  • PERSÓNUVERND

Kallik.is ábyrgist að farið sé með allar upplýsingar um viðskiptavini sem trúnaðarmál. Kallik.is geymir ekki eða meðhöndlar upplýsingar um greiðslukort sem fara fram á sérstökum vefsvæðum þar til bærra greiðsluþjónustuaðila.

  • GREIÐSLUMÖGULEIKAR

Unnt er að greiða með öllum helstu viðurkenndu greiðslukortum, auk Netgíró. 

  • VARNARÞING

Rísi ágreiningur vegna þessara skilmála skulu  mál vegna hans rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

  • KALLIK.IS

Karl K. Karlsson – Bakkus ehf, Kt  530303-2410, VSK númer 78896, Aðsetur:  Víkurhvarfi 1, 203 Kópavogur, Sími: 540 9000.

is_IS