Víkurhvarf 1

203 Kópavogur

Símanúmer:

+354 540 9000

9-16 alla virka daga

Kíktu við í heimsókn til okkar

Ný tónik lína – Double Dutch

Við vöruval okkar hefur bæst ný drykkjarlína. Um er að ræða tóniklínu sem sköpuð er af hollenskum tvíburasystrum sem hafa það að markmiði að bæta gæði kokteila.

Hver einasta flaska af Double Duth er framleidd í Bretlandi og eru engin gerviefni notuð í framleiðslunni, né litarefni eða rotvarnarefni. Aðeins eru notuð náttúruleg hráefni, sem blönduð eru við lindarvatn frá norðurhluta Englands til að skapa brakandi ferska og framsækna drykki. Allar tegundirnar innihalda lágan hitaeiningfjölda og aðeins eru notuð náttúruleg sætuefni.

Vörumerkið fékk viðurkenninguna „Foodpreneur Award 2018“ sem sjálfur Richard Branson veitir árlega  og „Best Adult Soft Drink Award 2016“  sem samtökin World Beverage Innovation Awards veita.

Indverskt tónik

Bragð

Við kínin bragðið er bætt bleiku greipi og til að fá meiri dýpt í bragðið er einiberjum bætt við, sem hefur einnig þau áhrif að það dregur úr bitru eftirbragðinu sem gerir marga afhuga tóniki

Lykt

Fínofin með vott af ávöxtum.

Granatepli og basilika

Bragð

Basilikan er þekkt fyrir að draga fram sýru í mat á borð við tómata og í gosdrykkjum eru pipraðir bragðtónar hennar frábært mótvægi við sætuna í granateplinu. Útkoman er margslungið og framandi bragð sem styður við, en yfirgnæfir ekki, blandað drykki.

Lykt

Ilmur af jurtum með sætum en sterkum undirtón.

Gúrka og vatnsmelóna

Bragð

Náttúruleg sæta vatnsmelónunnar spilar skemmtilega með ferskleika agúrkunnar.

Lykt

Vottur af sætu með frískandi ilmi

Engiferbjór

Bragð

Þrenns konar tegundir engifers sameinast til að bjóða upp á fullkomna braðgupplifun: sá fyrsti er sterkur með pipruðum grunni, sá seinni er pipraður með keim af sítrónu og sá þriðji er sætur með jarðnesku bragði. Að lokum er límónu blandað við sem býður upp á ferskt og safaríkt bragð.

Lykt
Sterkt með keim af límónu.

„Skinny“ tónik

Bragð

Þessi útgáfa af tóniki inniheldur 60% færri hitaeiningur heldur en klassíska útgáfan. Þrátt fyrir það er engu til sparað þegar kemur að bragðgæðum og er því um að ræða tilvalin svaladrykk sem drekka má einn og sér eða sem mixer með gini eða vodka. Eins og í klassísku útgáfunni má finna tóna af bleiku greipaldini og einiberjum í bragðinu.

Lykt
Næm, með þurrum eftirtónum.

Trönuberjatónik

Bragð

Um er að ræða seiðandi mixer sem hannaður er til að para þurrleikann í kínín saman með súrsæti bragði trönuberja, sem síðan er fylgt eftir með marslungnum tónum af engifer sem leikur um palettuna.

Lykt
Bitur með sætum keim.

Deildu:

Facebook
Twitter
Pinterest
LinkedIn

Innihald:

Skyldar fréttir

Spurðu sérfræðinginn

Spurðu sérfræðinginn
First

Viltu senda okkur skilaboð