Marineruð grilluð kjúklingalæri með Rana Gnocchi ásamt pesto & mozarella (fyrir tvo)
Matreiðslumeistarinn Haddi kokkur deilir hér með lesendum uppskrift af himneskum kjúklingarétti – Grilluð kjúklingalæri ásamt fersku Rana gnocchi
Hráefni
Gnocchi og sósa:
1 pakki Rana Gnocchi
1 Dós Grænt Rana Pestó
Kjúklingalæri
400-500gr úrbeinuð og skinnlaus kjúklingalæri
1 poki Mozarella kúlur, litlar
100 ml Rjómi
Djús af hálfri sítrónu
Rifinn sítrónubörkur af hálfri sítrónu
2 greinar Sítrónu Timian
2 msk hunang
50 ml Torres Olívuolía
1 hvítlauksrif, Fínt saxað
Aðferð
Gnocchi og sósa
Setjið pestósósuna í pott ásamt rjóma og látið suðu koma upp
Sjóðið Gnocchi samkvæmt innihaldslýsingu og setjið ofan í pestósósuna þegar það er tilbúið
Kjúklingalæri
Blandið saman Olíu, sítrónusafa, sítrónubörk, hvítlauk, sítrónu timian & hunang
Setjið kjúklingalærin ofan í og marinerið í klst
Grillið lærin í 3-4 mín á hvorri hlið & Kryddið með salt og pipar

Þegar að kjúklingurinn er tilbúinn, berið fram með gnocchi og pestó.
Ekki er verra að opna eina Torres Coronas rauðvín á meðan að kjúklingurinn er á grillinu og bjóða uppá með kvöldmatnum. Frábært rauðvín frá Spáni sem að er bragðmikið og passar vel með grillmat.
